Jæja kæru bekkjarsystkyni!
Ef ég man rétt þá eru 4 ár síðan síðasti hittingur var hjá okkur (á Búðarkletti sama dag og Eurovision) og þá gaf ég þá yfirlýsingu að ég mundi ekki halda næsta hitting.........en vitið menn ekkert hefur gerst síðan þá!
Þannig að ég og Ágústa vorum að ræða þetta og erum að stefna að því að halda eitthvað "gigg" í tilefni af 10 ára útskriftarafmælinu okkar, hvernig lýst ykkur á það.......og nú viljum við að fólk vakni upp af vetrardvalanum og verði soldið virkir!!!!!!!!
Við vorum að hugsa um svona maí-júní?????
Einnig viljum við fá hugmyndir frá ykkur ef ykkur dettur eitthvað sniðugt að gera í hug.
Þannig að tökum nú fram hanskana og reynum að hafa upp á þessu fólki sem ekki hefur verið að skrifa inn á síðuna!
Hlakka ótrúlega til að sjá ykkur öll!
Kveðja Dagný Pétursd.